03ágúst

Lélegur bloggari !

Ég held það sé á hreinu að ég mun aldrei fá verðlaun fyrir aktívt og gott blogg !
Ég hef reynt það oftar enn einu sinni og oftar enn tvisvar að halda úti bloggi og ég bara get engan vegin munað að blogga! Samt vinn ég og heng í tölvunni allan dagin !  hvað er í gangi... ?Saklaus

Ég er búin að eignast litla sæta frænkuSkömmustulegur hlakka svo til að sjá hana ! !
Ég er glötuð að vera ekki búin að kíka á hana ! Fýldur 

Svo á ég líka lítin sætan "plat" frænda sem er eignlega frændi óskars, enn allavega hann er sko sætasti litli strákur í heimi, og ég verð að monta mig af einni mynd af honum og óskari! http://www.barnaland.is/barn/48351/album/376382/img/20060801231216_13.jpg

Þeir eru sko sætastir í heimi þarna Hlæjandi 

Æjj ég hef ekki mikið áhugavert að segja! tekst alltaf að babla eitthvað ómerkilegt Svalur

Við förum líklega til Akureyris um helgina þó það sé ekki 100% ákveðið !
Ef við förum ekkert erum við ein heima og mér finnst það mun meira heillandi enn tjalda í blautu og láta sig rigna niður í 17° Óákveðinn


bless
03. ágúst 2006 klukkan 15:49
Heiđrún Arna
Engin athugasemd
23júlí

Hún á afmćli í dag, hún á afmćli í dag !

Jæja,
þá er maður komin í fullorðinamannatölu - eða hvað?- og ég loksins orðin 19 áraSvalur 
Já svona er það gott fólk ! mamma mín gaf sér blóm í tilefni dagsins, 19 ár síðan hún bröslaði mér inní heimin  !

Innanhús fréttis segja að Öddi frændi(sonur önnu, fallegustu frænku minnar) gæti orðið pabbi í dagHissa Barnið er búið að láta bíða soldið eftir sér enn stóra frænka vissi að það væri bara að bíða eftir besta deginumKoss 

Verður spennandi að sjá hvort eitthvað gerist.... það hefur tíma til 00 í kvöld að verða 23.júlí barnSaklaus 

Ég hef svosem ekki mikið að segja, jú ! er búin að liggja sveitt yfir bakstri í gær og í dag og á boðstolnum verður:

* Frönsk Súkkulaði terta
* heitt fléttubrauð fyllt með skinku,beikon,sveppum og fleira gúmmulaði
* heitt fléttubrauð fyllt með broccolí, skinku og fleira gúmmulaði
* Brauðterta með ítölsku salati sem er rækjur, fetaostur,sólþurkaðir tómatar, hvítlaukur, sítrónusafi- nammi namm

* Karmellu-epla-baka með rjómakaramellum, eplum, kanil og fleiru

* Skúffukaka skreytt með hlaupköllum og smartís og engum vondum kúlum

Og þetta er allt  ! ! !

Herlegheitin byrja svo klukkan 16 í dag og koma ömmur, afar, frænkur og frændar, tengdó og tvær litlar konur !

Fólki er velkomið að þiggja afganga seinna í kvöld Hlæjandi

Sí jú

Heiðrún arna

23. júlí 2006 klukkan 17:05
Heiđrún Arna
2 athugasemdir
12júlí

Ítalía heimsmeistarar !

Góðan Daginn,

rakst á þessa mjög skemmtilegu og áhugaverðu lærdómsríku síðu....

Ég auðvitað skoða hana BARA afþví ég held með ítalíu enn ekki vegna yfirskriftarinnar sem er Nektarmyndirnar af Ítalska Landsliðinu! neineinei allgjörlega ekki...Saklaus

mæli með að fólk scrolli niður á síðuna og sjái umrædda mynd, þar eru þeir Buffon,Canavaro, Del Piero og fleiri góðir leikmenn fáklæddir,olíubornir og rakaðir í bak og fyrir....

jæja ég segji ekki meir. http://b2.is/?sida=tengill&id=176547  Ullandi


p.s þetta er BARA fyrir Helgu Bjarnardóttir og enn og aftur minni ég á fótboltaáhuga minn á ítalska landsliðinu, FULLKLÆDDUM Svalur


p.s2 óskar minn ekki verða fúll, ég setti þetta inn líka fyrir þig elskanKoss veit þér finnst þeir svo Hot !
12. júlí 2006 klukkan 18:01
Heiđrún Arna
2 athugasemdir
10júlí

Helgin, fćrslan sem styttir vinum mínum stundir...

Jæja,

Hér á eftir kemur nákvæm greinagóð lýsing á helginni minni skemmtilegu ! !

Föstudagur: Óskar veikur, ég að vinna lengi lengi, skilaði sætri rauðri peysu til Laufeyjar Birnu litlu sætu og hún klæddi sig í hana og elti mig enn ég sagði : Nei heiðrún er að fara ,þú verður að segja bæ bæ... Þá snéri hún sér að mömmu sinni og pabba og sagði: Bæ mamm, Bæ pabba... og labbaði á eftir mér enn ég sagði nei þú kemur ekki með mér, pabbi hennar tók hana og hún orgaði og orgaðiFýldur fór virkilega fyrir hjartað á mérGráta 

vá ómerkileg saga enn samt.....

Til Helgu : laufey sæta er semsagt byrjuð að tala eins og fullorðin einstaklingur og lætur allveg vita með allt eins og : Ég er búin að túta, Ég á, má fá? ég sita hér, laujei taka, heija dansa. og fleiri yndislega skemmtilegar setningar ! verðum að bæta henni inní hópin fyrr eða síðar, hún væri flott á stjörnutorginu með okkur:D

Laugardagur:  óskar enn veikur enn samt vöknuðum við kl 10:00 og brunuðum til selfossar til mömmu hans og pabba og skrupppum í landmannalaugar! rosalega skemmtilegur rúntur sem innihélt mjög fallegt umhverfi, gamlar konur á pjöllunni að fara í laugina í landmannalaugum(óskar missti kynhvötina) og síðan yndislegan kvöldverð á Vík í Mýrdal ! Ég svaf í klukkutíma í fallega umhverfinu vegna viðvarandi bílveiki .enn nóg um það !  vorum of þreytt til að keyra heim, gistum í selfossinu !

Nú spyr fólk sig HALLÓ HALLÓ, hvað með írska daga ?? ég verð bara segja að ég veit ekkert hvert þeir fóru enn ef ég sé þá einhverstaðar bið ég þá að hafa samband.

Sunnudagur:  klöppuðum hestunum, jeij, fórum í reykjavíkina, óskar veikur, fórum til læknis, hann með sýkingu í vinstra lungna, fékk sýklalyf 3 töflur, ein á dag, þúsund kjell stykkið Hissa 
ÍTALÍA VANN HEIMSMEISTARAMÓTIÐ 2006 ! ! ! ! ekki má það nú gleymast !

Zidane missti sig og gékk sína leið inná klepp blessaður maðurinn, annars var leikurinn frábær, hefðu mátt vera fleiri mörk, enn betra liðið sigraði alla vegaKoss

Kveð að sinni,

vonandi skemmtu Helga og fleiri sér vel við þennan lestur,

Heiðrún
10. júlí 2006 klukkan 14:59
Heiđrún Arna
1 athugasemd
06júlí

Taka Eitt

Heil og Sæl,

Ég ætla að gera mjög heiðarlega tilraun til þess að halda uppi enn einni blogg síðuni undir mínu nafni ! Vonandi gengur það betur enn vanalega:)

Þeir sem ekki vita þá er ég að vinna í móttökunni í Tónabæ og það er rosalega lítið að gera hjá mér þessa daganna, annað enn að panta dömubindi í tonnavís hjá Rekstrarvörum og taka við skráningum hjá útlendingum sem halda að ég kunni kínverskuÞögull sem gröfin 

Við fórum á Landsmót Hestamanna síðustu helgi og það gekk bara merkilega vel fyrir sig í heildina !  Lögðum af stað á undan allri umferð um 16 leitið og sóttum nokkra vel valda á Hagamel(rétt hjá hvalfjarðargöngunum) um sexleitið og vorum komin í Vindheimamela um 9 um kvöldið! okkur var hleypt inn með forsölumiðanna og við fórum beint í að koma upp stóra fallega hústjaldinu Tala af sér 

Við vorum mettíma að tjalda því eða um 10 mínútur enda miklir snillingar hér á ferð !
Það var trallað og tjúttað fram eftir nóttu eins og dagin eftir !
við gláptum á nokkra sæta hesta enn gerðum samt of lítið af því að mati óskars greyisins sem vildi eyða öllum sínum stundum í stóðhúsunum hjá sínum líkum!

Sást það á öllu að hestamenn eru mjög ógagnrýnið fólk og hefur ekkert á móti ofdrykkju áfengis ! Talað var um tveir eða þrír hefur fengið sér bjór enn meira var það nú ekki!

Ég er semsagt í vinnunni núna, með svona pro-head-set á hausnum (eins og poppstjarna skiljiði...) og þegar ég tikka á tölvunna er eins og einhver andi í eyrað á mér !  rosalega krípi:S
svo eru svo mikil læti í þessari græju að mér bregður þegar ég hósta !

jæja ætli ég bloggi ekki meira þegar ég hef ekkert að gera næst !
semsagt eftir korterSvalur

Later,
Heiðrún Litla "wannabeblogger"

06. júlí 2006 klukkan 16:52
Heiđrún Arna
1 athugasemd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Gagnasafn